Helga Árnadóttir
Hönnuður og myndskreytir Lestrar Flóðhesta

Hæ!
Ég heiti Helga Árnadóttir og er hönnuður Lestrar Flóðhesta. Ég bjó til spilin fyrir yngsta son minn þegar hann var að læra að lesa. Það kom nefnilega í ljós þegar hann var búinn að læra stafina að honum fannst svona ofboðslega leiðinlegt að lesa og námið varð að einhversskonar neikvæðri upplifun. Við reyndum að finna eitt­hvað áhuga­vert og skemmti­legt létt­lestr­ar­efni fyrir hann, en sáum að það var algjör vöntun á íslensku efni fyrir byrj­endur í lestri, sem ekki höfðu náð færni til að lesa skemmtilegar bækur með söguþræði.

Við fjölskyldan ákváðum að föndra saman orðaspil á litla miða sem vakti mikla lukku og við foreldrarnir tókum strax eftir fram­för í bæði lestr­ar­á­huga og færni hjá stráknum okk­ar, og spilin hjálpuðu líka dóttur okkar með málfræði. Það besta var að við vorum bara að spila saman fjöl­skyldan og eng­inn að hugsa um lær­dóm. Spilin urðu síðan ofur vin­sæl hjá öllum þeim sem spil­uðu með okk­ur, þannig að við ákváðum að gefa þau út, svo fleiri börn gætu spilað.

Aðal­á­hersla okkar er að spilin séu skemmti­leg og glaðleg, og okkar von er að þau nýtist sem flestum börnum , stuðli að jákvæðri lestrar upplifun og skemmtilegum samverustundum.

Súper lestrar og spilakveðja ⭐️
Helga Árnadóttir – æðsti flóðhestur

© Lestrar Flóðhestar 2023 | Skilmálar